Jákvæður agi kennir félagsfærni og lífsleikni

  • Meginreglur Jákvæðs aga hjálpa til við að byggja samband væntumþykju og virðingar og þær auðvelda að finna lausnir til frambúðar
  • Jákvæður agi byggir á kennslu, skilningi, hvatningu og samskiptum

Börn verða ábyrgðarfull ef þau fá tækifæri til að þroska félagsfærni sína í gegnum lífsleikni í andrúmslofti virðingar, góðvildar og festu. Jákvæður agi byggir á því að börn þroski og efli með sér færni í að finna lausnir og setja sér mörk í samvinnu við fullorðna.


Jákvæður agi er uppeldisstefna byggð á sjálfsstjórnarkenningum.

Höfundar:

  • Alfred Adler, Rudolf Dreikurs, William Glasser, Jane Nelsen o.fl.

Það sem stýrir hegðun:

  • Fólk er knúið áfram af innri þörfum – að tilheyra.

Við höfum mest áhrif:

  • þegar við höfum samskipti sem byggjast á gagnkvæmri virðingu.

Áhrifamestu verkfærin eru:

  • samhygð, skilningur, þrautalausnir, góðvild og festa.

Virðing er:

  • gagnkvæm, í samskiptum eiga allir aðilar skilið virðingu.

Viðbrögð við óæskilegri hegðun:

  • Að leita orsaka, finna lausnir og fylgja ákvörðunum eftir.

Viðbrögð við hættulegri hegðun:

  • Skýr eftirfylgd og rökréttar afleiðingar.

Nám fer fram þegar:

  • barn upplifir tilgang, sjálfsstjórn, þátttöku.


Góðvild og festa á sama tíma


© 2016 - 2024 Karellen