news

Upplýsingar vegna Covid-19

02. 03. 2020

Þar sem búið er að staðfesta COVID-19 smit á Íslandi viljum við benda á viðbragðsáætlun Naustatjarnar við heimsfaraldri en hana má finna undir Upplýsingar - Viðbragðsáætlun við heimsfaraldri/innflúensu.

Þar sem þessar fréttir geta valdi ótta og kvíða hjá börnum viljum við minna á að ræða þessi mál af yfirvegun við þau. Við munum halda okkar striki og reiknum með óbreyttu skólahaldi nema að yfirvöld mælist til um annað. Nemendur mega þó búast við að kennarar verði duglegri við að minna þau á að bora ekki í nefið, naga neglur og þvo hendur vel fyrir matartíma.

© 2016 - 2024 Karellen